 |
 |
 |
 |
 |
|
Friday, November 17, 2006
Ég vil benda ykkur öllum á það að ég er komin með nýja síðu af því að þessi er með algjöran móral og virkar þegar hún er í stuði... Þannig að allir sem koma hingað:
www.birtas.bloggar.is
Takk fyrir góðar stundir hér.
Þær verða það vonandi líka á bloggar.is
-BirtaS-
Posted at 00:13 by BirtaSæm
Permalink
Monday, November 06, 2006
...bloggaði ég.
Klukkan er núna 00:50 og mér leiðist! Ég er að skrifa ritgerð um:
Islam, uppruna og þróun, ævi Múhameðs, Kalífadæmið og deilurnar um eftirmann spámannsins.
Ég er svo ekki að nenna því núna, en ég get sjálfri mér um kennt því ég hafði allan tímann um helgina en byrjaði einhvern veginn ekki á því. Ég var svo upptekin við að slappa af hérna heima í Neskaupstað að ég gleymdi mér alveg. Það er hrikalega gott að koma heim, ég tala nú ekki um þegar frí er á morgun og þá fengum við alveg heila tvo daga hérna plús föstudagskvöldið, sem var indælt. Ég gerði lítið annað en að hanga heima um helgina... ehh, eiginlega gerði ég ekkert annað. -Við leggjum af stað á morgun og ég býst við því að ég muni koma heim á vistina, leggjast í rúmið og freistast til þess að leggja mig, þangað til ég fatta að ég þarf að skila ritgerð um:
Islam, uppruna og þróun, ævi Múhameðs, Kalífadæmið og deilurnar um eftirmann spámannsins.
...Þið hljótið að vera búin að ná því hvað ég er að skrifa um. Eins og ykkur sé ekki sama!
Ég sé að ykkur er líka sama um hvort ég fari á nýja síðu eða ekki, en það eru aðeins komin 8 atkvæði (og ég greiddi ekki atkvæði btw). Ég sem hélt að síðan væri komin á skrið með öllum þessum kommentum um daginn. En það helst nú aldrei. Ég hvet ykkur hér með til þess að kommenta oftar.
...Ég læt mig dreyma.
-Annars er það að frétta af mér að ég fékk vinnu í Bónusvideo hjá Domino's. Ég held að ég eigi bara heima í videoleigum, það er pottþétt mín köllun í lífinu. Til hvers að vera að læra eitthvað meira? Ég er þá í tveimur vinnum og ég ætla að hætta á niðurdrepandi staðnum 10-11. Ég þori því bara ekki aaaalveg strax, hef aldrei hætt í vinnu svona allt í einu, skiljiði? Verð líklegast í þessum tveimur vinnum að jólum, eða 14. des. Þannig að það er vinna hverja helgi fram að því, vúhú. -Well, það eru bara 5 helgar... ég þarf hvort sem er peninginn.
Annars held ég að ég hafi ákveðið að setja dredda í toppinn minn líka. Mér leiðist það að vera með topp núna, það passar einhvern veginn svo ekki við lengur, spurning hvort það gerði það einhvern tímann. Shit, ég gæti hafa verið über hallærisleg í eitt og hálft ár. Ah! Don't care...
Þannig að: Dreddar í toppinn næsta sumar - vúhú!
Jæja... þetta var smá útúrdúr sem tók 13 mínútur... Kannski svolítið langur tími fyrir svona innihaldslaust blogg. Kannski nenni ég bara ekki að fara að læra.
Klukkan er 01:03 og mér leiðist ennþá. En tími kominn á ritgerð.
-BirtaS-
p.s. ritgerðin er um Islam, uppruna og þróun, ævi Múhameðs, Kalífadæmið og deilurnar um eftirmann spámannsins, bara svo þið vitið...
Posted at 00:50 by BirtaSæm
Permalink
Skólaleiði - Fáfræði - Asnar
Thursday, November 02, 2006
Kannist þið við skólaleiða? -Eflaust. Ég er með skólaleiða núna og ég hreinlega NEEEEEENNI ekki að vera í skóla. Sama hvað ég hlakka til skólans í ágúst, hversu góð mætingin mín er fyrstu... 3 vikurnar, hversu farily góðar einkunnar ég fæ, þá virðist ég alltaf fá ógeð af skóla. Þetta verður að svona pirrandi rútínu og þegar komið er á miðja önnina getur maður ekki hætt að hugsa til framtíðarinnar þegar maður er BÚIN með allt þetta og byrjaður að vinna við það sem maður vill vera og gera það sem maður vill gera.
(Takið eftir því hvað ég sagði oft maður þarna; einhver einkunn lækkaði einhvern tímann í grunnskóla af því að ég sagði alltaf maður í texta...)
Kannast einhver við þetta eða er þetta bara ég??!
En já. Ég nenni ekki að fara í skóla í vor, ég nenni ekki að klára stúdentinn af því að ég þarf ekki stúdentspróf við það sem mig langar að læra, ég nenni ekki að hanga í tímum og hugsa endalaust um framtíðina og það sem ég ætla að gera EFTIR stúdentspróf.
En það sem ég VIL síst (og takið eftir því að ég notaði "NENNI ekki" áðan) er að vera þrítug - fertug, ekki með stúdentspróf, kannski ekki að vinna við það sem ég ætlaði mér sem unglingur og horfa tilbaka og hugsa: "Vá, hvað ég var vitlaus!" -Ég VIL ekki heldur vera að klára stúdentinn komin yfir 25 eða á fertugsaldri. Og ég VIL ekki fá jafnvel minni laun heldur en ég hefði getað fengið á einhverjum stað hefði ég verið með stúdentspróf.
Fuck it!! Ég verð bara að bíta á jaxlinn, harka af mér og klára þetta helvíti! Ég stefni á að klára jólin 2007 en þá er ég búin að vera 3 og hálft ár með framhaldsskóla, að utanskildu árinu á Spáni. -Ég tel það vera nokkuð góðan árangur fyrir mig...
Í morgun fórum við í heimsókn í Hvítasunnusöfnuðinn á Akureyri í trúarbragasögu. Karlinn sem tók á móti okkur var fínn í fyrstu og talaði um söfnuðinn, hversu gamall hann væri, hvernig hann væri frábrugðinn lútherstrú og hversu margir væru í honum. Síðan sagði hann að þau væru með gömlu gildi og væru t.d. á móti hjónaskilnuðum og þá ákvað ég að spyrja hvernig viðhorf þeirra væri gagnvart samkynhneigðum.
OG ÉG VARÐ BRJÁLUÐ!!!!!
Hann sagði að þau væru á móti samkynhneigðum, að þetta væru syndarar og að rannsóknir hafa sýnt að það SÉ hægt að "snúa þeim við". Hann sagði samt að söfnuðurinn myndi ekki vísa samkyhneigðum frá kirkjunni, heldur kæmu til hans nokkrir sem voru niðurbrotnir og hræddir (og átti við að þeir vildu ekki vera samkynhneigðir). Einn spurði hann hvort hann sagði að samkynhneigðir séu með brenglaðar hugsanir.
Karlinn: "Já! Það er ein leið til þess að orða það, þeir eru með brenglaðar hugsanir."
Þá setti hann samasemmerki á milli samkyhnhneigðra og óhamingjusemi, og seinna á milli samkynhneigðra og laustlætis. Hann sagði að tíðni sjálfsmorða hjá samkynhneigðum væri há og spurði af hverju. "Kannski út af svona fordómum," sagði ég. -Hann sagði að samkynhneigð væri synd alveg eins og framhjáhald og líkti þessu tveggja saman. Þá sagði ég:
"En það er ekkert það sama!"
Karlinn: "Hvernig þá?"
Ég: "Samkynhneigð er að bera tilfinningar gagnvart einhverjum af sama kyni, að elska einhvern af sama kyni. Framhjáhald er að fara til einhvers annars og svíkja manneskju."
...Samt virtist hann ekki sjá muninn.
-Einhvern veginn var ég sú eina sem var eitthvað að spyrja spurninga þegar við máttum og ég held að fólki hafi verið alveg sama. Sem sýnir aðgerðaleysi og áhugaleysi margra unglinga. En ég var pirruð og reið yfir þessum fordómum og fáfræði mannsins. Mig langaði að standa upp og ganga út um leið og hann byrjaði. Hann kenndi þeim auðvitað fyrir alla kynsjúkdóma og þá kom nú einhver og spurði hvort hann meinti að samkynhneigðir væri meira lauslátir heldur en gagnkynhneigðir. Hann vildi meina það. Hann spurði þá hvort við þekktum samkynhneigt fólk. -Flest allir sögðu já. Þá spurði hann hvort þetta fólk væri með einni manneskju - sem margir svöruðu líka játandi. Ég sagði að ég þekkti samkynhneigt fólk sem hefði bara verið með einni manneskju og margt gagnkynhneigt fólk sem væri alltaf að skipta um bólfélaga.
Það besta sem hann sagði að mínu mati var þegar hann minntist á að nú væri verið að tala um að fara að leyfa samkynhneigðu fólki að giftast og hann myndi alveg gifta hommar og lesbíur - Hann myndi bara ekki gifta 2 karla saman eða 2 konur!!!
Hann minnti mig á eina ástæðu fyrir því af hverju ég skráði mig úr Þjóðkirkjunni.
-BirtaS- sem er mjööög reið og pirruð yfir að hugsa um þetta núna!
p.s. ég ætlaði að minna ykkur á skoðanakönnunina... en það skiptir kannski ekki máli. Ég virðist vera að fara að skipta um síðu *snökt*...
Posted at 23:11 by BirtaSæm
Permalink
Tuesday, October 31, 2006
 |
Posted by Name @ 10/29/2006 09:37 PM PST |
 |
| Hey heimska stelpa sem póstar myndum af sér á brjóstahaldaranum á síðunni sinni!!! Gegndrepa var framleitt á undan þessum CSI þætti! Keep your facts straight, slut. | |
Jæja. Alltaf er einhver sem er ósammála manni og þarf að reyna að móðga mann. Og alltaf er það einhver sem þorir ekki að segja til nafns. Ég hefði ekki tekið eftir þessu ef Bjarmi hefði ekki sagt mér frá þessu en mamma sýndi honum þetta og hló. Þetta er líka fyndið. Barnalegt og fyndið. Hehe. Þegar ég var yngri og var gelgja þá commentaði ég stundum með skítakjaft og skrifaði ekki undir nafni. Ég óx uppúr því og ef ég vil segja eitthvað sem ég þori ekki að segja undir eigin nafni sleppi ég því.
En þarna er á ferðinni einhver sem ekki er vaxin/n uppúr þessu. Ég ætla ekki að eyða þessu commenti heldur svara því svo allir sjái, ekki bara þeir sem lesa comment aftur í blogg.
Fact: Ég er ekki heimsk. Ekki það að ég sé egó dauðans, en ég er ekki heimsk. Ég veit svo mikið (það að ég er ekki heimsk, ekki: ég veit svoooo mikið).
Svar: Já. Ég er með myndir af mér á brjóstarhaldaranum á netinu. En hvernig er brjóstarhaldari frábrugðin bikini? Einstaklingar birta myndir af sér í bikini og þar er í rauninni enginn munur.
Ástæða fyrir birtingu myndarinnar: Mig dreymir um að læra ljósmyndun og í rauninni stefni ég á það. Ástæðan fyrir því að ég setti þessar myndir á netið er ekki sú að ég elska hvernig ég lít út - þó ég vildi að ég væri fullkomlega sátt við útlit mitt, heldur það að mér finnst þetta vera töff ljósmynd sem slík. Svo er þetta líka hálfgerð leið til þess að sætta mig við mitt útlit.
Fact: Handritshöfundar CSI eru EKKI að fara að taka hugmynd frá íslenskum raunveruleikaþætti til þess að nota í sinn þátt. Engum asna dettur það í hug. Sér í lagi þegar einungis er búið að sýna 2-3 þætti af Gegndrepa. Hver ætti þá að vita af þessu?
Fact: CSI þátturinn með watergun dæminu í, heitir Fair Game og hann var sýndur fyrst 1. mars 2006. Það þýðir að hann var tekinn upp löngu fyrir það. Ef ég man rétt var hægt að sækja um að fara í Gegndrepa í sumar...
Fact: Sumar er á EFTIR mars!
Fact: Ég er ekki drusla... allavega finnst mér það ekki. En ég veit það ekki. Spurning hvað fólki finnst. Það er nú frekar druslulegt að birta myndir af sér á brjóstarhaldaranum ef maður pælir í því. Shit. Ég verð að hætta að fara í sund. Fólk gæti haldið að ég væri að selja mig!
Allavega "Name"... Ég vona að þetta hafi verið nóg af staðreyndum og ég vil að þú vitir að ég virði það að þér finnst þessi þáttur góður. Fyrir ykkur sem hélduð að ég væri að koma með eitthvað blogg í kvöld þá verður þetta að duga. Kannski á morgun aftur.
-Birta "heimska stelpan sem póstar myndum af sér á brjóstarhaldaranum á síðunni sinni" Sæm-
Posted at 21:29 by BirtaSæm
Permalink
Monday, October 30, 2006
Þar sem bloggin mín hafa hingað til verið mjög djúp þó ég segi sjálf frá (yeah yeah), þá ætla ég bara að koma með eitt venjulegt. Er líka hálftóm núna. En fyrst, ÞETTA:
MIKIÐ hefur verið kvartað um það að síðan mín virki mjög sjaldan og ég veit hvað þið eigið við, kemur líka fyrir hjá mér. Fólk sagði að ég ætti að fá mér nýja síðu hvað eftir annað þannig að ég ætlaði, með skottið á milli lappanna, að gera það. Sem ég gerði! En hún er ekki fullbúin þannig að ég ætla ekkert að auglýsa hana. EN... Svooo var sagt að síðan mín væri loksins byrjuð að virka - þannig að ég er á báðum áttum hérna. Á ég að halda hérna áfram, með síðuna sem ég elska? Eða byrja uppá nýtt? Ég læt málin í YKKAR hendur og ég ætla að biðja ykkur um að svara í skoðanakönnuninni. Sama hver þið eruð. Eftir viku, frá og með deginum í dag mun ég svo sjá hvað skal gera.
HVAÐ FINNST YKKUR??!
Um helgina kom ung kona að nafni Hildur og er hún Árnadóttir. Hún ætlaði að eyða helginni á Akureyri, hitta vini og skemmta sér. Lagði hún af stað á fimmtudegi frá Reykjavík keyrandi, með bilaðan geislaspilara í bílnum. Hún kom um 6 leytið og náði í mig á vistina og svo fórum við á Hótel Akureyri þar sem hún dvaldi þessa daga. Þegar hún fékk lykil að herberginu opnaði hún dyrnar að einhverju sem reyndist ekki vera stærra en kústaskápur. Og það er ekki grín. Þetta var svo lítið að maður þurfti að fara upp við vegginn svo einhver kæmist framhjá manni, og liggur við ofan á klósettið til þess að loka hurðinni að baðherberginu. Eeen til þess að gera ekki svo langa sögu enn styttri þá er bara best að segja að við 2 fórum út bæði kvöldin og skemmtum okkur alveg ágætlega vel bara. Það var tími til kominn að ég færi út hér á Akureyri og skemmta mér aðeins. Slæmt fyrir Víking að vera lítill strákur - hann var því miður heima. Ég uppgvötaði það að það eru mikið fleiri skemmtistaðir á Akureyri heldur en ég bjóst við, og margir af þeim byrja á Kaffi.
Anyways...
Ég skemmti mér vel um helgina. Ég og Hildur enduðum á því að fara á Domino's klukkan 12 á sunnudeginum og fá okkur alveg heilan helling að éta. Svo hélt hún heim á leið, eftir að hafa tæmt allt herbergið og tekið þessa 3 ruslapoka sem voru fullir af bjórflöskum, ehemm.
-BirtaS-
p.s. Blogga væntanlega aftur á morgun þar sem þetta var stutt miðað við mig.
Posted at 22:05 by BirtaSæm
Permalink
Öll erum við eins - þó ekkert lík
Wednesday, October 25, 2006
Ég var alveg örugglega í sögu, ef ekki bara trúarbragðasögu einn daginn þegar ég var ekkert endilega að fylgjast með. Var ekki í þannig stuði þann daginn. Og ég fór að krota í bókina mína. Eitthvað sem ég er AFAR góð í. Það ferli felst yfirleitt í því að ég skrifa nafnið mitt í mismunandi skriftum svona u.þ.b. 1000 sinnum á síðu. Þegar ég fæ leið á því skrifa ég nafnið hans Víkings, bý til einhver nöfn og skrifa kannski hugmyndir af ljóðum, sem aldrei verður svo meira úr. Og svo krota ég lítil textabrot, setningar, eitthvað sem kennarinn sagði og eitthvað bull. Fuck er orð sem ég nota mikið, og ekki veit ég af hverju. En um daginn skrifaði ég: Öll erum við eins - þó ekkert lík.
Við erum mannleg. Flest okkar eru með 10 fingur, 10 tær, 2 hendur, 2 fætur, 2 augu, 2 eyru, munn, augabrúnir, nafla... þið vitið hvert ég er að fara. Við erum öll byggð eftir sömu teikningunni - en "uppfærumst" og breytumst. Við getum verið mjó, feit, há, lág, dökk, ljós o.s.frv. -En grunnur okkar er alltaf eins. Eins með mannleg eðli, og mannlegar tilfinningar. Við kúkum, pissum, borðum, sofum, öndum, hugsum, verðum svöng, þreytt, pirruð, glöð og döpur. Við viljum öll vera elskuð, við viljum öll elska. Við fæðumst, eldumst, þroskumst, lærum, viljum, verðum kannski ástfangin, missum einhvern nákominn - lifum.
Öll erum við eins að þessu leyti. En ekkert okkar er líkt. Við lítum ekki eins út. Við högum okkur mismunandi, eigum ekki nákvæmlega sömu áhugamál, erum samkynhneigð, tvíkynhneigð, gagnkynhneigð. Erum einfaldlega ekki lík.
Hvernig væri ef við myndum hugsa svona næst þegar við dæmum einhvern fyrir að vera asnalegur, feitur, of mjór...? "Þessi manneskja er alveg eins og ég."
Ath. að ég er ekki að segja YKKUR að hætta að dæma fólk. Öll gerum við það og líka ÉG. Ég myndi vilja breyta MÍNUM hugsunarhætti - hvað með ykkur?
Love
You don't know, how your kiss makes me feel. You don't know, how warm your touch makes me. You don't know, what it's worth to hear you say: "I love you." And you don't know, How much I love you back.
-BirtaS-  Currently listening to: OBy Damien Rice
Posted at 00:06 by BirtaSæm
Permalink
Tuesday, October 24, 2006
Listi yfir raunveruleikaþætti sem Íslendingar hafa stolið frá Bandaríkjunum (sem stela stundum annars staðar frá):
American Idol - Idol Stjörnuleit X-Factor - X-Factor The Bachelor - Bacherlorinn (Nafnið var ekki einu sinni ÞÝTT yfir á íslensku!) Punk'd - Tekinn America's Next Top Model - Man-ekki-hvað-hann-hét með Ásdísi Rán Celebrity Overhaul - Frægir í Formi Who Wants To Be a Millionaire? - Viltu vinna milljón?
....Og þetta er bara brot. Ég sá fyrir tilviljun Gegndrepa þegar hann var endursýndur. Mér leist vel á hugmyndina, uppsetninguna á þættinum og ég var spennt að sjá eitthvað raunveruleikasjónvarp sem ég var ekki búin að sjá á öðru tungumáli áður. Hann var kynntur sem fyrsti alíslenski raunveruleikaþátturinn. Spennandi. -En svo horfði ég á CSI: NY í gær og sá NÁKVÆMLEGA sömu hugmynd! Watergun war (eða whatever). Í þættinum var það kannski ekki eitthvað raunveruleikasjónvarp en án efa sami leikurinn þar sem fólk átti sín skotmörk til þess að skjóta með vatnsbyssu, eða henda vatnsblöðrum í. Ég missti alla virðingu fyrir Gegndrepa, og ekki það að ég hafi kannski borið virðingu fyrir þessum þætti - heldur staðreyndinni að hann var kynntur sem eitthvað alíslenskt. Auðvitað mátti maður vita það.
Við virðumst taka allt frá Bandaríkjunum. Auðvitað eru Bandaríkin stórt land og margt í boði þaðan. Margir góðir tónlistarmenn, frábærar bíómyndir og leikarar og það er ekki hægt að neita því að Bandaríkin hafa áhrif alls staðar í heiminum. En því miður er þar heilalaust fífl fyrir forseta sem virðist geta gert nákvæmlega það sem hann vill. Af því að Bandaríkin eru Bandaríkin og Bush er Bush. En í pólitíkina ætlaði ég ekki að fara.
Ég kem aftur að spurningunni minni úr titli dagsins. Erum við svona ófrumleg? Á þessu stigi þarf ekki að nefna hversu frábært tónlistarfólk er á Íslandi, góðir rithöfundar, leikarar, leikstjórar og gott fólk. Þið ættuð að vita allt um það. En hvað varðar frumlegheit verð ég að segja og sum ykkar hljóta að taka undir, hvort sem þið fílið það eða ekki:
Guði sé lof fyrir Sigur Rós og Björk!
-BirtaS-  Currently listening to: Takk...By Sigur Rós
Posted at 00:16 by BirtaSæm
Permalink
Saturday, October 21, 2006
Ég er í trúarbragðasögu. Sag 373. Þetta er bóklaus og próflaus áfangi, og er mjög áhugaverður. Ég verð að segja að mér finnst flest öll trúarbrögð áhugaverðari en Kristni, sérstaklega Gyðingdómur með allar sínar sögur, reglur og siði. Ekki það að ég myndi vilja vera gyðingur. Strangtrúaðir gyðingar hafa frekar fucked up reglur eins og þeir borða ekki svínakjöt og annað kjöt borða þau ekki nema dýrið hafi verið skorið á háls við slátrun. Konur eru taldar óhreinar á meðan þær eru á blæðingum og verða að halda sig til hlés. Þegar þær eru búnar á blæðingum baða þær sig samkvæmt sérstakri venju. Gyðingar hafa svo miklu fleiri reglur og siði sem ég myndi aldrei nenna að fara eftir... Ég myndi ekki heldur nenna að læra þeirra 613 boðorð. Samt. Áhugavert.
Ástæðan fyrir því að mér finnst önnur trúarbrögð áhugaverðari en Kristni er kannski sú að ég hef hingað til aðeins lært lítillega um önnur trúarbrögð. Aðeins grunninn. Af því að frá því að maður fæðist þá er bara troðið ofan í mann kjaftæði um Guð og Jesú Krist. Jæja. Það er kannski ekki skrýtið þar sem Ísland ER kristið land. Ég get nú samt ekki sagt að á mínu heimili hafi verið mikið rætt um Jesú. Ég lærði faðir vorið af blaði sem var innrammað heima, með mynd sem Enid Blyton teiknaði fyrir ofan. Ég held að myndin hafi verið ástæðan fyrir því að þetta var innrammað og hékk uppi á vegg - fallegt skiljiði. Við höfum aldrei farið í kirkju á jólunum, nema þegar ég var skírð, sem var 2. í jólum. Ég var ekki hvött til þess að biðja og fara með kvöldbæn, ekki svo ég viti. Og í sannleika sagt er ég mjög ánægð með það.
Í tíma í dag vorum við að tala um heilögu þrenninguna. Faðirinn, sonurinn og heilagur andi. Fólk vildi meina að með þessu, heilögu þrenningunni væri Kristni fjölgyðistrú en þá var haldið þing og þetta var skýrt svona: Guð ER faðirinn. Guð ER sonurinn. Guð ER heilagi andinn. Guð hefur 3 grímur og birtist í líki einhvers úr heilögu þrenningunni. Og ég spurði í dag: ,,En talaði Jesú ekki við Guð, föður sinn?" Sjáið til. Ef Guð getur bara birst í líki eins í einu þá ætti Guð að hafa verið í Jesú og hann hefði þá ekki getað talað við föður sinn, sem er hann sjálfur. Og ef taka á þetta lengra þá hefði Jesú í rauninni bara getað verið á meðan hann lifði, það er: Jesú dó um þrítugt, ekki satt? Á þessum þrjátíu árum eða svo hefði Guð átt að vera Jesú og hefði ekki getað verið neitt annað... Eða hvað? -Flókið mál.
Svarið sem ég fékk var að það er erfitt að útskýra þetta allt. Eins og það er erfitt að útskýra það að frá Adami og Evu hafi mannkynið orðið til sem þýðir að synir þeirra tveggja hefðu þurft að sofa hjá móður sinni og þannig hefði sifjaspellið þurft að halda áfram um mörg ár, og í raun væri það enn gangandi þar sem Nói fór bara með fjölskyldunni sinni í Örkinni og þurftu að byggja upp mannkynið once again, með sifjaspelli. Sem er bannað í Kaþólsku kirkjunni.
Niðurstaða Birtu: Það er gaman að pæla í trúarbrögðum, því þau virðast vera óútskýranleg. Hægt er að fara í hringi og pæla endalaust og ég hef einmitt hrikalega gaman af því. En ég er ekki trúuð. Ég trúi ekki á þessa kristnu hugmynd. Og þess vegna ákvað ég að segja mig úr Þjóðkirkjunni, sem mér finnst vera ákveðinn þroskaáfangi í lífinu. Að láta það skipta máli, hvort þú ert í Þjóðkirkjunni, trúuð eður ei. Gifti ég mig í framtíðinni verður það ekki í kirkju, eignist ég börn skíri ég þau ekki og leyfi þeim að ákveða hvað þau vilja gera, þegar ég dey læt ég eftirlifandi ættingja hafa áhyggjur hvað á að gera við mig.
...En svo er alltaf til hugtakið maki. Maki þyrfti líklegast að samþykkja hvort börn manns yrðu skírð eða ekki. Seinni tíma vandamál.
Talandi um maka og ALLT annað málefni... Ég og minn "maki" (maki hljómar svo formlega) erum búin að vera saman í ár í dag, laugardag. Þetta eru tímamót í lífi okkar beggja - við erum að velta fyrir okkur húsi, eða sameiginlegum bankareikningi. Jafnvel barneignum.
-BirtaS-
Posted at 01:29 by BirtaSæm
Permalink
Ég stóð ekki við mín eigin orð... Bömmer!
Monday, October 16, 2006
Nei nei, þetta á EKKI að gerast!! -Ég ÆTLA að blogga reglulega héreftir...! Ég sver til... ég sver við sjálfa mig að ég ætla að gera það!
Gífurlega margir hafa átt afmæli að undanförnu þannig að ég kemur afmæliskveðja til allra:
Íris Dögg varð 17 ára 1. október, og fékk bílpróf.
Helgi "Gráni" frændi varð hundgamall og Lea Margret 17 ára 7. október.
Yours truly (fyrir þá heimsku, ÉG) átti afmæli 8. október. Ég varð 19 ára þannig að núna er aðeins ár í að ég megi drekki löglega. -Ég fékk að vinna þann dag. Jibbí Jei!
John Lennon fæddist 9. október.
Eva Björk mágkona með meiru náði 2ja áratuga afmælinu 13. október. Ég hefði viljað fara suður og djamma með henni og vinum, en við ákváðum að fara austur þar sem ég á engan pening til þess að fara til freistinganna fyrir sunnan. Ég sá ekkert eftir því heldur.
...ég man ekki eftir fleirum í bili. Ef þið eruð ekki þarna þá bara sorry, en til hamingju með afmælið!! :D
Við fórum semsagt austur um helgina, komumst þangað heil á húfi. Á föstudeginum fórum við í partý til Eyþórs þar sem var nóg af ungu fólki. Seinna var Maggafest hjá Birki. Það kvöld var úrhelli og ég og Stefán stóðum úti í rigningunni að tala um helst ekkert og rennblotnuðum (útaf rigningunni perrarnir ykkar!) Víkingur var orðinn drukkinn og þreyttur og vildi fara heim sem við gerðum á endanum. Ákváðum að skokka heim frá Birki sem gekk upp og niður, en ég tók sprettinn í endann og vann... Muhaha! Þurftum að fara úr buxum og peysum í þvottahúsinu, svo blautt var það, hlupum niður að bursta tennur og í háttinn. Víkingur þurfti svo að vakna til þess að fara að vinna.
Laugardeginum var svo eytt í algjöra afslöppun. Ég vaknaði um hádegisbil, fékk mér Cocoa Puffs og svo var horft á dvd. Simpsons og Pretty Woman. Mamma eldaði frábæran mat, kjúklingabringur með mozzarella osti, skinku og einhverju laufi inní. Mmmmm, mjög gott!! Ég ætlaði að hjálpa til með matinn en svo hringdi engin önnur í mig en Hildur nokkur Árnadóttir og ég talaði við hana um allt og ekkert í rúmlega hálftíma. Það skásta sem ég gerði í sambandi við matinn var að leggja á borð. Ég fór í sturtu og tók mig rólega til fyrir ball með - Á Móti Sól.
Áður en ég held áfram hef ég þetta að segja: Ég sór þess að fara ALDREI í lífinu á ball með Á Móti Sól. Ég ÞOLI EKKI þessa hljómsveit og hef aldrei gert. Þeir eiga ömurlegustu lög allra tíma: Spenntur, Ég á afmæli í dag... og miklu fleiri, ég veit ekki hvað þau heita. Þó svo að ég horfði á Rock Star og fannst Magni sanna sig og sýna sem frábær söngvari ákvað ég að láta það ekki á mig fá, Á Móti Sól er enn LEIÐINLEG hljómsveit.
EN!!!! Það er alltaf EN! Þetta ball var þessa helgi og ég hef ekki farið á ball með vinkonum mínum lengi, og bara með þeim. Þannig að ég ákvað að skella mér. Núna hugsið þið: "Oh, þvílík afsökun. Hún vildi alveg fara!"
Þið hugsið þetta ekki þegar ég segi þetta: Það var ógeðslega gaman á þessu helvítis balli með þessari helvítis hljómsveit!!!!! Ég veit ekki hvort ég eigi að vera svekkt með að hafa rangt fyrir mér, eða bara þroskast og viðurkenna mín mistök. Ég verð samt að segja að ég dansaði EKKI við neitt af þeirra lögum (svo ég muni eftir). En ég hitti mikið af fólki, drukknu fólki, dansaði mikið, keypti bjór, hafði gaman og naut þess að djamma með vinkonum mínum. Þannig að ég sé ekki eftir þessu balli.
Þakka öllum sem ég hitti um helgina fyrir good times. Sérstaklega Auði, Helenu, Agnesi, Víkingi, Bjarma, mömmu, Svenna penna (sem ég hitti eiginlega ekki neitt, hann er orðinn táningur og gífurlega busy fyrir vikið)... og já. Bara þér!
-BirtaS-
p.s. Ég fékk að heyra um helgina að margir lásu bloggið mitt, en ég virðist aldrei fá comment nema frá sama fólkinu. Ég skora á að commenta, það er bara gaman að vita hver les mig.
p.p.s. Roskilde part III er væntanlegur. Hann er í vinnslu, en ég er INDEED byrjuð á honum... Bið Evu um að senda mér kannski nokkrar góðar myndir frá Roskilde.
Posted at 21:17 by BirtaSæm
Permalink
Tuesday, October 03, 2006
Ég vil svosem ekki tjá mig mikið um þetta mál. Ég er orðin frekar þreytt á því að rökræða um það. Ég er ekki á móti álveri, en ég reyni að virða skoðanir þeirra sem er á móti því og það af bestu getu. Þið sem ekki trúið mér - ykkar vandamál.
Mikil umræða hefur verið á huga.is útaf þessu og fólk fer alltaf út í það að kalla hvort annað asna, hálfvita og heimskingja, bara útaf því að það hefur aðrar skoðanir á þessum máli. Það sem mér þykir virkilega og þá meina ég VIRKILEGA leiðinlegt er að sumir halda að lausnin liggi í því að allir flytjist á höfuðborgarsvæðið og málið er leyst. Nóg pláss er á höfuðborgasvæðinu, right?
Hér eru quotes frá samlöndum okkar:
"já þeir eru að eyðileggja land allra landsmanna þannig að þeir geti fengið vinnu í sínu skíta sjávarplássi í staðinn fyrir að leita annað."
"þeir sem eru ekki ánægðir með vinnuna sína á landsbygðinni eiga bara að koma til reykjavík city og vinna hér í staðinn fyrir að eyðileggja landa okkar allra fyrir eitthvað tímabundið quick fix í atvinnumálum."
"Fyrir utan það að ég hef ekkert á móti landsbyggðinni, ég skil bara ekki fólk sem vill búa þar. ;)"
Það virðist vera nær óskiljanlegt að við viljum búa í okkar heimabæ, á heimaslóðum okkar. Það hefðu kannski verið til betri lausnir heldur en álver, kannski ekki. Hver veit? Ég ætla ekki að fara að styðja virkjanir um allt land, en ég ætla ekki að gráta það land sem fer undir vatn. Við eigum mikið að fallegum landsvæðum og það getur vel verið að þetta verði ekki ljótt. Ég ætla ALLS ekki að þykjast vita allt um þetta. Ég veit ekki allt um þetta. En fólk er að tala um það hversu sorglegt það er fyrir okkur að þurfa að lifa á því að láta útlendinga fá orku, eða eitthvað slíkt. Ég veit samt ekki betur en sjávarútvegur er mjög mikilvægur á Íslandi og hvað gerum við þar? Seljum útlendingum fiskinn. Og hvað er slæmt við það að selja útlendingum eitt og annað? Hvaðan fáum við allt okkar drasl, fá útlöndum.
Ég styð Kárahnjúkavirkjun, ég styð aðallega uppbyggingu minnar heimabyggðar. Það þýðir ekki að ég styðji stríð eða eyðileggingu alls lands. Og ég ætla pottþétt ekki að fá mér bol sem segir að ég styðji virkjunina. Til hvers? Pirra fólk? -Get þá alveg eins fengið mér einn flottari "bad-ass attitude" bol í Dogma.
-BirtaS-
p.s. Þetta eru MÍNAR skoðanir. Ég skrifa þetta ekki hér til þess að fá skítaköst frá þér eða öðrum eða halda þessum umræðum áfram um ár og aldir. Öll komment sem mér líkar ekki vel við verða eytt út... En ég þoli ýmislegt.
Posted at 02:37 by BirtaSæm
Permalink
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
|
 |